Verðbólgan hér á landi tekur kipp

Verðbólgan hefur tekið kipp og er komin upp fyrir 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans í fyrsta sinn frá því í ársbyrjun 2014.

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,56% í mars frá fyrri mánuði og nemur verðbólgan nú því 2,8%, miðað við vísitöluna síðustu 12 mánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri síðan í janúar 2014 þegar hún var 3,1%. Hún er þvi komin yfir verðbólgumarkmið Seðlabankans sem er 2,5%.

Hagstofan segir skýringuna eftirfarandi: „Vetrarútsölum er lokið og hækkaði verð á fötum og skóm um 4,4% (áhrif á vísitöluna 0,15%). Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hækkar um 1,4% (0,29%).“