Magnús Árni Skúlason hagfræðingur hjá Reykjavík Economics segir afleitt að ekki fleiri en raun ber vitni nýti sér skattlausa úttekt á séreignasparnaði til að eignast húsnæði eða minnka greiðslubyrði.
Um 1500 manns hafa tekið út séreignarsparnað til að kaupa fasteign. Frá því í júlí 2014 hefur verið hægt að taka út sparnaðinn skattfrjálst og líka að ráðstafa honum inná höfuðstól lána en um 25 þúsund fasteignaeigendur hafa gert það. Þetta staðfestir Ríkisskattstjóri.
Úrræðið er þannig að eigandi húsnæðis borgar í hverjum mánuði allan séreignasparnaðinn sinn eða hluta af honum inná höfuðstól verðtryggða lánsins og lækkar þar með afborganir. Ekki er hægt að fara aftur í tíma og taka þá upphæð sem hefur safnast áður nema með undantekningur frá Ríkisskattstjóra og sérstökum rökstuðningi. Ef sparnaðurinn er hins vegar tekinn út seinna, eins og hugsað var í upphafi er lagður tekjuskattur á hann. Boðið var upp á skattfrjálsa úttekt sparnaðarins um leið og hin svonefnda skuldaleiðrétting varð í hitteðfyrra, árið 2014.
Magnús segir í viðtali á Hringbraut í kvöld að þessi leið henti ekki öllum þótt hann telji að miklu fleiri gæti nýtt sér hana. Þeir sem séu með ótrygga vinnu, verktakar til dæmis ættu að geyma sparnaðinn en hinir sem sjá fram á trygga atvinnu fram að starfsflokum ættu að nýta sér hann. Lífeyrissparnaður er ekki aðfararhæfur og því er gott, búi fólk við óöryggi, að geyma hann ósnertan.
Kostirnir við að nota sparnaðinn er að við úttektinga eru ekki greiddir neinir skattar en við hefðbundna úttekt á efri árum þarf að greiða þann skatt. Á móti kemur að sá sem notar sparnaðinn vegna húsnæðist verður af vöxtum sem hann myndi fá á þeim árum sem sparnaðurinn er óhreyfður.
Árni segir að ekki sé ólíklegt að fólk vilji ekki hreyfa við sparnaðinum þar sem það upplifi hræðslu við að tapa honum og setji sig ekki inn í mál sem þeim finnst ef til vill of flókið. Með því getur fólk þó orðið af mikill búbót því með niðurgreiðslu á höfuðstólnum eignast fólk meira í húsnæði sínu og eign þeirra stækkar þar með.
Úrræðið stendur almenningi opið frá til júlí á næsta ári, að öllu óbreyttu.