Fjárhagsstaða Háskólans á Akureyri er mjög bág. Skólann vantar tilfinnanlega 300 milljónir til að geta haldið áfram því starfi sem er nú. Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, að fjárhagsstaðan hafi nú þegar komið í veg fyrir eðlilegar og nauðsynlegar framfarir.
Rektorinn segir að verði ekki gerð bragabót sé ekki önnur leið en draga úr námsframboði og annarri þjónustu.
Háskólinn á Akureyri verður þrjátíu ára á næsta ári og að óbreyttu verður það ár ekki fagnaðar, heldur samdráttar.
Eyjólfur segir að ein birtingamynd peningaleysis sé sú að hæft starfsfólk leitar annað, þangað þar sem betur er búið að því gert er. Á Akureyri bendir ekkert til annars en áfram verði haldið í sparnaði, nokkuð sem nú þegar hefur tíðkast of lengi.
„Við verðum að sameinast um að endurmeta allt menntakerfið,“ segir Eyjólfur.
-sme