Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur, sagðist á Hringbraut í gær, óttast að hún, sem og aðrir sérfræðilæknar, verði einungis læknar ríka fólksins.
Arna óttast, verði frumvarp heilbrigðisráðherra um breytingar á lögum um greiðsluþátttöku sjúklinga að lögum, muni fátækara fólk neita sér frekar um læknisþjónustu en nú er.
„Ef komugjöld verða hækkuð og sjúklingar verði að borga úr eigin vasa allt að 100 þúsund krónur áður en Sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði þeirra. Hinir efnameiri geta þannig keypt sér forgang.“
Þá verður það þannig að þeir sem vilja sleppa undan biðinni eftir að hitta heimilislækninn geta, mögulega gegn hærra gjaldi, farið beint til sérfræðilæknis.
Sem dæmi um öngþveitið sem myndast á heilsugæslunni með tilkomu þessara breytinga má nefna að komur til barnalækna árið 2015 voru um 109.000. Tilgangurinn er að spara sjúklingum komugjöld sem nema innan við eitt þúsund krónum fyrir hverja heimsókn til barnalæknis. Koma á heilsugæslustöð kostar hið opinbera hins vegar um 9.000 krónur og ef hún endar með tilvísun til sérfræðilæknis greiðir ríkið til viðbótar um 10.000 krónur. Erfitt er að sjá hvernig þetta fyrirkomulag sparar fjármuni og einnig hvað gerist þegar bankað er upp á með veikt barn og bið eftir tíma hjá heimilislækni er jafnvel talin í vikum.