Ver kerfið sig sjálft?

Valgerður Bjarnadóttir Samfylkingu og Vilhjálmur Bjarnason Sjálfstæðisflokki mættust í Þjóðbraut í morgun og tókust á um ýmsa hluti. Einkum um skiptingu gæðanna. Valgerður segir núverandi ríkisstjórn vera ríkisstjórn ríka fólksins, en Vilhjálmur segir ríkisstjórnina ekki vera vonda.

Rætt var um fullyrðingar um að kerfið verji sig sjálft var rætt í þættinum. Vilhjálmur segist ekki taka undir það, nema hvað varðar Framsóknarflokkinn og landbúnaðarkerfið.

Valgerður sagði þetta hafa verið helsta baráttumál Bandalags jafnaðarmanna árið 1983 og hún ætli að halda þeirri baráttu áfram: „Alveg þar til ég verð 100 ára.“

Í Þjóðbraut á allra síðustu dögum töluðu þau Vigdís Hauksdóttir, Sveinn Runólfsson og Páll Kr. Pálsson um hversu erfitt er að koma í gegn breytingum og hversu oft unnið er að sérhagsmunum.