Venjulegar verslanir flýja miðborgina

Leiga fyrir verslunarrými hefur hækkað mjög mikið í miðbæ Reykjavíkur. Það hefur orðið til þess að verslanir flytjast á brott. Kaupmaður segir leiðinlegt fyrir ferðamenn að sjá ekki lengur venjulegar verslanir.
 

Þetta kemur fram í samantekt RÚV um málið í gærkvöld, en þar segir að einni elstu verslun landsins, Vísi við Laugaveg í Reykjavík, verði að líkindum lokað á næstunni. Leigusamningi verslunarinnar hafi verið sagt upp og óvíst sé að það takist að fagna hundrað ára afmæli hennar í desember. Faðir Þóris Sigurbjörnssonar hafi rekið verslunina frá 1943 en sjálfur hafi hann tekið við henni um 1960: \"Það var eiginlega allt að gerast hér, mikið af stórum fyrirtækjum. Það voru einar þrjár prentsmiðjur hér, t.d. skattstofan hér niðri í Alþýðuhúsi og ráðuneytin hérna allt í kring,“ segir hann við RÚV.

Þórir opnaði verslunina klukkan átta á morgnana en margt breyttist þegar stætisvagnar hættu að ganga niður Laugaveg: \"Þessari þróun verður ekkert breytt, hér er allt orðið fullt af túristum, þetta er þeirra pláss núna.“

Hann er spurður hvort setja eigi reglur um hvað megi selja í verslunum í miðbænum, en svarið er afdráttarlaust: \"Nei nei það þýðir ekkert að vera að setja reglur um svoleiðis lagað.“

Hendrik Berndsen hefur rekið Blómaverkstæði Binna á Bergstaðastræti í 26 ár. Búðin hans er nú til sölu. Tösku og hanskabúðin var á Skólavörðustíg í 55 ár. Hækka átti leiguna fyrir húsnæðið um helming. Búðin var flutt í lok apríl og er núna rétt fyrir neðan Hlemm.  

„Bara núna síðustu tvö til þrjú árin þá t.d. var hér á horninu Heilsuhúsið, síðan var Tösku- og hanskabúðin hérna svo fyrir aftan okkur var barnafataverslun.  Nú eru þetta eintómar túristabúðir“

Dæmi eru um að fólk greiði á bilinu fjögur til fimm þúsund krónur á mánuði fyrir fermetrann hér í miðbænum. Það er meira en ein og hálf milljón á mánuði fyrir 300 fermetra verslunarrými. Þetta hefur áhrif á þróunina.