Venjuleg hjón: geta ekki keypt íbúð

\"Það eiga ekki allir foreldra sem geta hjálpað með útborgun,“ segir ungt par sem varð að falla frá kaupum á sinni fyrstu íbúð. Greiðslubyrðin hefði verið hátt á þriðja hundrað þúsund á mánuði.
 

Fréttastofa RÚV sagði í vikunni sögu ungs pars á Huldubraut á Kársnesinu í Kópavogi, þeirra Huldu Aspar Atladóttur  og Baldurs Guðmundssonar sem þar búa með sonum sínum tveimur. Þau kunna vel við sig í hverfinu en þurfa að flytja þaðan á næstu vikum. Þau leigja nefnilega og fengu nýlega þær fréttir að búið væri að selja íbúðina. Þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flytja af þessari ástæðu og því ákváðu þau að kaupa íbúð.

\"Við erum búin að vera á leigumarkaðnum frá því við vorum unglingar, sextán og sautján ára, og erum nú með tvö börn, fimm ára og þennan sem ekki er orðinn eins árs og okkur fannst tími til kominn að reyna að komast í húsnæði þar sem við þurfum ekki að vera háð því að leigusali selji ekki ofan af okkur,“ sögðu þau við RÚV í gærkvöld

Þau gerðu tilboð í 3ja herbergja íbúð í Kópavogi á 34 milljónir króna. Þau ætluðu að taka 85 prósenta lán í bankanum og nýta uppsafnaðan lífeyrissparnað fyrir útborgun. Sú leið reyndist ekki fær nema að takmörkuðu leiti. Hulda er lögfræðingur í föstu starfi og Baldur er blaðamaður og starfar sem fréttastjóri. Laun þeirra beggja eru yfir meðallagi og því var bankinn tilbúinn að veita þeim fjögurra milljóna viðbótarlán til fimm ára. Í heild hefði greiðslubyrðin af lánunum tveimur, að meðtöldum ýmsum gjöldum, verið 270 þúsund krónur.

\"Það var ekki þess virði. Ég tala ekki um þegar maður bætir ofan á óvissu út af verðbólgu og möguleika á að vera kannski bara í neikvæðri stöðu eftir fimm ár. Dæmið gekk ekki upp,“ segir Hulda. 

Þau segja bráðvanta úrræði fyrir fólk sem annaðhvort vill ekki eða getur ekki keypt sér íbúð.

\"Það er ekki endilega óeðlilegt að maður geti ekki keypt íbúð ef maður á ekki fyrir útborgun. En samt sem áður, það eru bara svo ofboðslega margir í þeirri stöðu. Eigum við þá bara að vera flakkandi á nokkurra ára fresti af því það er okkar staða?“ spyr Hulda og Baldur tekur orðið: „Það er erfitt að safna sér fyrir útborgun á leigumarkaði, vegna þess að húsnæði á leigumarkaði er svo dýrt. Ég tala nú ekki um þegar maður stendur í námi og í kjölfar náms eignast maður börn og tekur fæðingarorlof. Þá er erfitt að safna sér fyrir útborgun og það eru ekki allir í þeirri stöðu að eiga foreldra eða einhvern að sem getur hjálpað til með útborgun,“ sagði Baldur í frétt RÚV um málið fyrr í vikunni.