Veltan í ferðaþjónustu 340 milljarðar

Þórey Vilhjálmsdóttir nýskipaður formaður Ferðamálaráðs lagði á það áherslu í viðskiptaþættinum Hringtorgi á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld að landsmenn tali ekki með neikvæðum hætti um fjölgun ferðamanna. Þórey kom einnig inn á það að ferðaþjónustunan er orðin stærsta gjaldeyrisskapandi atvinnugreinin og velti 303-308 milljörðum í fyrra. 


Talið er að veltan á þessu ári verða um 340 milljarðar og skapar þá ferðaþjónustan 30% gjaldeyristekna þjóðarinnar.  Þórey sagði einnig frá því að ferðamálaráð muni nota niðurstöður stefnumótunarvinnu Guðfinnu S. Bjarnadóttur sem leiðarljós í vinnunni ráðsins næstu mánuði.  Stýrihópur skipaður af Ragnheiði Elínu Árnadóttur, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem Guðfinna fer fyrir mun skila niðurstöðum um mitt sumar en markmið vinnunar er að útbúa heildstæða langtímastefnumótun fyrir greinina og framkvæmdaáætlun á grunni þessarar stefnumótunar. 


Hægt er að horfa á viðskiptaþáttinn Hringtorg í heild sinni hér: