Vélstjórar efast um fiskverð

 Guðmundur Þ. Ragnarsson, sem er formaður VM, félags vélstjóra og málmtæknimanna, vill fá að sjá svart á hvítu hvert skilaverð á fiski er til útgerðanna, einkum þeirra sem kaupa fiskinn sjálfar.

Guðmundi er mikið niðri fyrir vegna þessa máls og eins segir hann útgerðirnar, einkum þær stærstu, vera orðnar mjög valdamiklar og fjarri fari að allir sem þeim stjórna kunni að fara með það vald sem þeir hafa.

Hann segir jafnframt að Sjómannasambandið og Farmanna- og fiskimannasambandið hafi ekki starfað að heilindum við samningsgerð gagnvart útgerðinni. Vélstjórar fylgdu þeim ekki að málum og hafa því ekki skrifað undir nýjan kjarasamning líkt og aðrir sjómenn hafa gert.

Viðtal við Guðmund er í Þjóðbraut í kvöld klukkan 21:00.