Vélmenni byrjuð að steikja hamborgara

Vélmenni sem steikir hamborgara hefur klárað með sóma sína fyrstu vakt á skyndibitastað í Pasadena í Kaliforníu. Ætlunin er að þessi róbótategund taki að sér steikinguna á tugum staða hjá CaliBurger keðjunni á næstunni.

Fréttaritari BBC í Bandaríkjunum fylgdist með. Með þess sem kemur fram í myndbandi BBC er að róbótinn notar hitaskynjun til að steikingin sé rétt og að hann geti græjað 12 hamborgara í einu. Hvert vélmenn kostar $60.000 (6 millj. kr.) og um $12.000 (1.2 millj. kr.) í rekstri árlega.

Myndbandið á BBC.