Úttektin er birt á fréttavef RÚV í dag og tekur til 142 landa sem er raðað eftir velmegun, en auk þess eftir átta undirflokkum. Evrópuríki skipa sjö af tíu efstu sætum heildarlistans. Haítí, Afganistan og Mið-Afríkulýðveldið skipa neðstu þrjú sætin.
1. Noregur
2. Sviss
3. Danmörk
4. Nýja-Sjáland
5. Svíþjóð
6. Kanada
7. Ástralía
8. Holland
9. Finnland
10. Írland
11. Bandaríkin
12. Ísland
13. Lúxemborg
14. Þýskaland
15. Bretland
136. Sýrland
137. Vestur-Kongó
138. Búrúndí
139. Tsjad
140. Haítí
141. Afganistan
142. Mið-Afríkulýðveldið
Í téðri frétt RÚV segir að Ísland standi sig misvel í efnisflokkunum en áberandi lakast í efnahagsmálum, þar sem Ísland telst miðlungsríki og er í 31. sæti. Ísland er í 4. sæti í flokknum frumkvöðlastarfsemi og tækifæri, í 18. sæti í stjórnarháttum, 10. sæti í menntun, 18. sæti í heilbrigði, 2. sæti í öryggi, 5. sæti í frelsi einstaklingsins og 13. sæti í samfélagsauði.
Langflestir Íslendingar, 90%, telja að Ísland sé gott land fyrir innflytjendur, samkvæmt úttektinni. Þar skipa Íslendingar sér meðal fimm efstu ríkja, ásamt Kanada, Noregi, Nýja-Sjálandi og Írlandi.