Vellauðugur sigmundur býr í glæsihöll í garðabæ með 20 milljónir í ár frá alþingi: fær líka 134 þúsund í húsnæðisstyrk á mánuði

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins býr í glæsihöll að Skrúðási 7 ásamt eiginkonu sinni Önnu Sigurlaugu. Húsið er 370 fermetrar að stærð og metið hátt í 150 milljónir. Þrátt fyrir að vera búsettur á höfuðborgarsvæðinu hefur Sigmundur fengið 1.6 milljónir króna í húsnæðis og dvalarkostnað. Sigmundur fær 134 þúsund á mánuði frá skattgreiðendur sem leggst ofan á laun hans því hann bauð sig fram úti á landi. Sigmundur fær rúmlega 22 milljónir í ár frá skattgreiðendum. Húsnæðisgreiðslan er ætlað þingmönnum utan Reykjavíkurkjördæma og þar sem Sigmundur Davíð bauð sig fram úti á landi fær hann þessa greiðslu þrátt fyrir að búa í í glæsihýsi á höfuðborgarsvæðinu.

Sigmundur og kona hans Anna Sigurlaug eru bæði af vellauðugum ættum. Gunnlaugur Sigmundsson, faðir Sigmundar, hagnaðist mikið á félaginu Kögun sem var upprunalega ætlað sem almenningshlutafélag. Anna Sigurlaug er úr Toyota-fjölskyldunni svokölluðu.

\"\"

Þannig fékk Anna fyrirframgreiddan arf og seldi Magnúsi sinn hlut fyrir 5,3 milljarða. Arfurinn var svo geymdu í hinu þekkta félagi Wintris. Eftir að nafn Sigmundar Davíðs kom upp í Panamaskjölunum vegn Wintris  hrökklaðist hann úr embætti og missti síðar formannssætið í Framsóknarflokknum og stofnaði Miðflokkinn.

Árið 2013 þegar Sigmundur Davíð var formaður Framsóknarflokksins og leit út fyrir að flokkurinn myndi eiga erfitt uppdráttar í borginni færði Sigmundur lögheimili sitt að Hrafnabjörgum III í Jökulsárhlíð en þar bjó hann aldrei. Þetta var átið 2013 en þá bjó Sigmundur Davíð í Seljahverfi í Breiðholti. Þessi tilfærsla gerði það að verkum að hann fékk þá húsnæðisstyrk. Árið 2009 hafði hann boðið sig fram í Reykjavík-norður.

\"\"

Sigmundur færði lögheimili sitt árið 2018 og skráði sig þá í höllina í Garðbæ að Skrúðási 7. Hann hefur haldið sig við það að bjóða fram úti á landi og fær því frá skattgreiðendum eins og áður segir um 134 þúsund á mánuði í húsnæðisstyrk eða 1.6 milljónir á ári.  

Laun Sigmundar Davíðs á þessu ári fyrir skatta voru 19.8 milljónir króna frá Alþingi. Þess má svo geta að í fastan ferðakostnað fékk hann á árinu 360 þúsund. Þá fékk hann 480 þúsund í fastan starfskostnað. Sé þetta talið saman fékk Sigmundur Davíð 20.661.492 krónur frá Alþingi. Sé húsnæðisstyrk bætt við þessa upphæð er útkoman 2.2 milljónir eða nákvæmlega 22.261.492.

Sigmundur fær föst í laun á mánuði 1.101.194.

Þá fær hann álag ofan á laun fyrir að vera formaður Miðflokksins krónur: 550.597

Að lokum má svo geta þess að einnig fékk Sigmundur Davíð 507.540 fyrir akstur á eigin bifreið og þá ferðaðist hann um á bílaleigubíl fyrir 114.313. Gisti og fæðiskostnaður innanlands var svo 248.203 krónur.