Flugslysið: annar mannanna látinn

Annar mannanna sem var í lítilli einshreyfilsflugvél sem hrapaði til jarðar ofar Barkardals á Tröllaskaga í gærkvöld er látinn. Hinn maðurinn, sem er vanur flugmaður, er kominn undir læknishendur í Reykjavík.
 
Vélin var á leið frá Akureyri til Keflavíkur í gærdag og átti að lenda syðra síðdegis, eða klukkan 16:20. Þegar ekkert spurðist til hennar var hafin víðtæk leit á lofti og láði og voru meðal annars um 200 björgunarsveitarmenn á Suður, Vestur- og Norðurlandi kallaði út til leitar. Tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni.
Vélin fannst svo á tíunda tímanum í gærkvöld og var þegar farið með mennina á Sjúkrahúsið á Akureyri og síðar með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík.
  
Lágskýjað var á Tröllaskaga þegar vélin fór á loft en enn er óvíst um tildrög slyssins.