Á árinu 2012 liðu að meðaltali 350 dagar frá því að dómur var upp kveðinn þar til afplánun í fangelsi hófst. Árið eftir liðu að meðaltali 367 dagar og árið 2014 var meðaltalið komið upp í 383 daga.
Þetta kemur fram í svari Ólafar Nordal innanríkisráðherra við fyrirspurn Páls Vals Björnssonar þingmanns Bjartrar framtíðar um tímalengd frá dómi til fullnustu hans í fangelsi.
Í svarinu segir einnig að á árinu 2012 hafi að meðaltali liðið 521 dagur frá því að dómur var upp kveðinn þar til samfélagsþjónusta hófst. Árið 2013 var meðaltalið 537 dagar og í fyrra var meðaltalið 575 dagar.
Þingmaðurinn vildi einnig fá að vita hversu margir fangar glími við áfengis- eða fíkniefnavanda. Í svari ráðherrans er vitnað til nýrrar óbirtrar rannsóknar þar sem fram kemur að tæplega 60% fanga eiga við vímuefnavanda að glíma.
Árið 2012 var fjöldi afplánunar- og gæsluvarðhaldsfanga hér á landi alls 148. Árið 2013 voru þeir 154 talsins en fækkaði um tvo árið 2014 og voru þá 152.