Nýtni var umfjöllunarefni Neytendavaktarinnar á Hringbraut í gærkvöld þar sem umsjármaðurinn Rakel Garðarsdóttir leitaði víða fanga við að kynna sér hvernig Íslendingar eru að reyna að vinna betur úr því hráefni sem til fellur hér á landi. Í þættinum kom meðal annars fram að einn dýrasti matfiskurinn sem veiddur er og unninn innan íslenskrar lögsögu, sjálfur þorskurinn, er enn mjög vannýtt auðlind þótt vissulega hafi margt áunnist í betri nýtingu hans á síðustu árum. Enn má þó gera miklu betur sem sést best á því að sérfræðingar telja að hægt sé að þrefalda virði þess gula með því að nýta til hlítar það sem fiskurinn hefur að geyma í holdi sínu, innyflum og beinum.
Þá er einnig sagt frá því að garðyrkjubændur hafa að mörgu leyti tekið sér fiskvinnsluna til fyrirmyndar hvað aukna nýtni varðar, en þeir eru farnir að vinna mun meira af því sem fellur til við afskurð í allskonar sósur og nýjar afurðir sem byrjað er að selja á erlenda markaði.
Það er svo enn til marks um nýtni að listakonan Elín Edda Árnadóttir er byrjuð að hanna og sauma handtöskur úr júgrum kúa eins og einnig kom fram í þættinum í gærkvöld, en hann er einnig hægt að nálgast í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á forsíðunni á hringbraut.is.