Vekur at­hygli á eins­leitni í les­efni barna: Fjöl­breyti­leikinn er enginn

Kolbrún Ósk Skaftadóttir birtir í kvöld pistil á Facebook-síðu sinni þar sem hún veltir fyrir sér fjölbreytninni í lesefni barna sinna eftir að hafa skrifað tölvupóst til skólastjóra um málið.

Í pistlinum segir Kolbrún frá því þegar hún hafi litið á bækurnar sem sonur hennar kom með heim úr skólanum og séð að yngsta bókin sem hann var með undir höndunum var sautján ára gömul.

Í því samhengi benti hún á að ekki væri að finna neina hinsegin manneskju né kynsegin persónu, manneskju af öðrum húðlit en ferskjubleikum, stelpu sem aðalpersónu, einstætt foreldri, né fatlaðan einstakling.

Engin þessara bóka inniheldur í raun neitt annað en gamlar, úreltar og í versta falli skaðlegar staðalímyndir um lífið. Fjölbreytileikinn er enginn. Ekki neinn.

Þá vekur hún athygli á spurningum sem sonur hennar sat undir eftir barnaafmæli á dögunum sem beindust meðal annars að því hver pabbi hans væri og hvort að hann væri dáinn.

Pistilinn í heild sinni má sjá hér fyrir neðan