Samkynhneigt fólk á Íslandi verður reglulega fyrir hatursglæpum og áreiti vegna kynhneigðar sinnar. Þetta segir framkvæmdastjóri Samtakana 78, en í fyrrinótt veittust fjórir menn um tvítugt að samkyhneigðu pari í miðbænum.
Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær, en þar greindi Jóhann Örn Bergmann Benediktsson frá því að í nótt sem leið hafi hann og kærasti hans orðið fyrir aðkasti vegna kynhneigðar sinnar þegar fjórir menn um tvítugt veittust að þeim. Jóhann Örn lýsir atvikum þannig að hann og kærasti hans hafi verið á gangi í Lækjargötu í nótt þegar ókvæðisorðum á borð við faggaógeð og hommaviðbjóður var hrópað að þeim.
Auður Magndís Auðardóttir, framkvæmdastjóri Samtakana 78, segir reynslu Jóhanns síður en svo einsdæmi. Atvik af þessum toga komi upp reglulega: \"Þetta er eitthvað sem að við hjá Samtökunum 78 höfum mjög lengi vitað að er bara staðreynd á Íslandi því miður. Við eigum í raun engar tölur um þetta en við heyrum alltaf af þessu með reglulegum hætti, sem gefur vísbendingu um að þetta eigi sér stað frekar oft, myndi ég halda. Auðvitað er svo bara toppurinn á ísjakanum sem kemur í fréttir eða maður heyrir með beinum hætti af,“ sagði Auður í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.
Hún telur skýrt að um hatursglæp sé að ræða.
Veittust að hommum í miðborginni
Fleiri fréttir
Nýjast