Saga, stafræn aðstoðarkona hjá flugfélaginu Icelandair, getur aðeins átt í samskiptum við viðskiptavinir á ensku. Eiríkur Rögnvaldsson, prófessor emeritus í íslensku, er harðorður í garð þessa á Facebook.
Eiríkur deilir skjáskoti frá vini sínum sem ætlaði að bóka flug til Bíldudal frá Reykjavík. Eina svarið sem hann fékk frá Sögu var að hún talaði ekki íslensku, til að fá svar þyrfti hann að endurtaka spurninguna á ensku.
„Það er til háborinnar skammar að íslenskt flugfélag skuli eingöngu bjóða upp á aðstoð á ensku – og kaldhæðnislegt, svo að ekki sé meira sagt, að gefa stafrænu aðstoðarkonunni nafnið Saga,“ segir Eiríkur. „Þetta heitir að gefa skít í íslenskuna.“