Veit sigmundur hvað gerðist í gær?

"Ríkisstjórninni virðast ætla að verða enn mislagðari hendur í Evrópumálum en vinstri stjórninni sálugu – og er þá langt til jafnað," skrifar einn reyndasti fjölmiðlamaður landsins og fyrrverandi útvarpstjóri, Páll Magnússon í nýjum pistli sínum á hringbraut.is í dag. "Sú sótti, umboðslítil, um aðild að Evrópusambandinu án þess að geta það - og þessi þykist, umboðslaus, draga þá umsókn til baka án þess að gera það."


Og Páll veit eiginlega ekki sitt rjúkandi ráð: "Í Morgunblaðinu í dag er haft eftir utanríkisráðherra: „Ég hef ekki sent neitt bréf, þar sem fram kemur að einhverju sé rift eða það dregið til baka“. Í sama blaði er fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins  spurður hvort umsóknin hafi verið afturkölluð. Svar: „Þetta jafngildir því“.


Hér hnyklar Páll brýrnar: "Er til of mikils mælst að þessir tveir ráðherrar komi sér saman um hvað hafi verið gert í gær? Síðustu vikur og mánuði hafa menn skemmt sér við að hæðast að orðaleikjum Grikkja í samskiptum við Evrópusambandið. Ruglandinn í ríkisstjórn Íslands slær því öllu við."


Og gamli fréttamaðurinn spyr í lokin: "Hvað skyldi forsætisráðherrann halda að hafi gerst í gær?"


Lestu pistil Páls í heild sinni hér: