Veistu um holu?

Einnig er tilkynnt að malbikað verði fyrir tvo milljarða í sumar.

Í sumar eru fyrirhugaðar meiri malbiksframkvæmdir en nokkru sinni áður í borginni á einu ári. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á tæpa tvo milljarða en lagðir verða 43 kílómetrar af malbiki. Hve marga þarf til starfa í malbikunarvinnunar eða hvernig stýra á greiðlega umferð á meðan kemur þá síðar í ljós.

Reykjavíkurborg hefur sent frá sér tilkynningum þar sem óskað er eftir því að fólk hafi samband viti það af slæmum holum í malbiki borgarinnar.

 Í tilkynningu frá borginni í dag er lögð áhersla á skjót viðbrögð við holum en að þær myndist í rysjóttri tíð eins og hefur verið undanfarið.  Viðgerðir á holum sem valdið geta slysi eða tjóni á ökutækjum hafa hæsta forgang og gert er við þær eins skjótt og mögulegt er eða þar sett viðeigandi varúðarskilti, segir í tilkynningunni.

Bent er á síma- og þjónustuver Reykjavíkurborgar í síma 411 1111 og einnig á vef Reykjavíkurborgar til að koma ábendingu á framfæri.

Miðað við árferði undanfarið og ábendingar sem komið hafa frá borgarbúum undanfarin ár og misseri hljóta línur borgarinnar að verða rauðglóandi.