Með hækkandi sól fylgja ýmis veisluhöld, fermingarveislur, útskriftaveislur og brúðkaup svo dæmi séu tekin.
Til að fá góð ráð og frumlegar hugmyndir um veisluhöld ársins fékk Sjöfn Þórðar fjóreykið Elvu Hrund Ágústsdóttur stíllista, Berglindi Hreiðars köku- og matarbloggara hjá Gotterí og gersemar, Viktor Örn Andrésson, landsliðskokk og einn eiganda Sælkerabúðarinnar ásamt Hrafnhildi Þorleifsdóttur blómaskreyti hjá Blómagalleríi til að slá upp fermingarveislu fyrir áhorfendur þáttarins Matur og Heimili þar sem hugsað er fyrir heildarumgjörð veislunnar.
Páskarnir nálgast óðfluga og margir eiga sér sína uppáhalds rétti sem tengjast páskunum og minningum.
Sjöfn heimsækir hinn unga og knáa bakaradreng Gulla Arnar í bakaríið hans og fær hann til að deila sínum uppáhalds páskaeftirrétt með áhorfendum og kenna þeim helstu trixin við framreiðsluna. „Mér finnst heslihnetumarengsinn hjá mömmu best og það er minn uppáhalds páskaeftirréttur.“
Ekki missa af Matur og heimili í kvöld klukkan 20:00 á Hringbraut.