Pottaplöntur bæta andrúmsloft á vinnustöðum og hafa góða áhrif á starfsfólk bæði andlega og líkamlega. Þetta kom fram í þættinum ,,Fólk með Sirrý” í gær en þátturinn var sendur út frá Garðheimum í Mjódd.
Sigurrós Kristinsdóttir deildarstjóri Fyrirtækjaþjónustu Garðheima fer inn á marga vinnustaði og aðstoðar við að gera umhverfið heilsusamlegra og fallegra. Hún vitnaði í rannsóknir sem sýna að veikindadögum starfsfólks fækkar ef grænar plöntur eru settar inn í umhverfið. Og þar sem margar tölvur og önnur rafmagnstæki eru í vinnuumhverfi fólks er alveg nauðsynlegt að hafa grænar pottaplöntur því þær draga til sín eiturefni og skila til baka hreinu súrefni.
Sigurrós sagði að æskilegt er talið að hafa eina stóra pottaplöntu á hverja tvo starfsmenn á 12 fermetra vinnusvæði. Nútíma tölvufyrirtæki á Íslandi eru sem betur fer vel með á nótunum hvað þetta varðar. Það þekkist líka að hver starfsmaður tekur nokkur pottablóm ,,í fóstur” og því verður ekkert mál að hafa fjölmörg blóm á vinnustaðnum.
Þátturinn úr Garðheimum var endursýndur á Hringbraut í dag og má einnig sjá á hringbraut.is.