Ríkisstjórn Løkke er því einungis skipuð meðlimum Venstre flokksins, hins hófsama hægrriflokks - og hefur aðeins 34 sæti í þinginu af 179. Því er ljóst að hún verður að semja við aðra flokka um stuðning við mál sem hún vill fá í gegn í þinginu.
Løkke birti lista yfir ráðherra sem skipa nýja ríkisstjórn á Facebooksíðu sinni. Løkke verður forsætisráðherra á ný en hann gegndi því embætti á árunum 2009-2011, Claus Hjort Frederiksen verður fjármálaráðherra og varaformaður Venstre flokksins, Kristian Jensen utanríkisráðherra. Fimm ráðherrar af sautján eru konur.
Það er nokkur kaldhæðni örlaganna að Helle Thorning-Schmidt sem jók fylgi Sósíaldemókrataflokks síns í kosningunum sagði strax af sér eftir að vinstra blokkin náði ekki meirihluta í þinginu og hefur sagt skilið við stjórnmálin, en sá sem tapaði einna mestu fylgi í kosningunum tekur við af henni.