Veiðileyfið

Óttarr Proppé talaði við vinstri flokkana fyrir kosningar. Það spjall virðist hafa verið mjög alvarlegt miðað við hvaða umsögn Óttarr fær nú. Hann er gagnrýndur fyrir hálfpartinn svik ef ekki bara hrein svik.

Tveir flokkar hafa öðrum fremur talað fyrir nýjum umræðuhefðum og vinnubrögðum í stjórnmálum. Það er Björt framtíð og Píratar. Sú umræðuhefð á að byggja á því að menn séu opnir fyrir samtali við hvern sem er. Þetta er nýtt í íslenskum valdastjórnmálum í ljósi dagsins í dag. Rétt er að íslenskir flokkar hafa nær ávallt sóst í að vera í ríkisstjórn. Hefðbundnu flokkarnir hafa flestir verið opnir í báða enda almennt en hér er annað á ferðinni.

Kannski er Guðni Th. forseti að hugsa í þessa áttina. Það tekur tíma að tala saman. Gera raunhæfan stjórnarsáttmála. Og það er ódýrt að ætla að úthrópa Óttarr fyrir að eiga samtal við aðra en þá sem hann drakk kaffi með, þótt það lendi ekki skipinu í höfn.