Landshlutablaðið Vesturland birtir í dag viðtal við Harald Benediktsson bónda og Alþingismann.
Haraldur krefst þess að veiðigjöld í sjávarútvegi verði endurskoðuð með tilliti til lækkunar í haust þar sem staða sjávarútvegsins hafi versnað.
Um málefni sauðfjárbænda segir Haraldur þá standa frammi fyrir mestu vá sem sést hefur í sauðfjárrækt í langan tíma.
Haraldur segir fyrirsjáanlegt að að ríkið verður að leggja fram fé til að hjálpa sauðfjárræktinni yfir hjallann.
Haraldur segir að Viðreisn og Björt framtíð verði að gera meira en það sem þægilegt er og kannski fara í aðgerðir sem þessir flokkar byggðu ekki sína pólitík á.
Þannig eru stjórnnmálin - málamiðlun og raunsæi þegar til kastanna kemur segir Haraldur.