Veiðar langt umfram það sem stofninn þolir – þurfti að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar um breytingar á reglum um sæbjúgnaveiðar. Þar áréttar ráðuneytið að breytingarnar séu gerðar á grundvelli vísindalegrar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar.

Sjá einnig: Rúmlega 20 manns sagt upp hjá Hafnarnesi – Ólafur segir sjávarútvegsráðherra og Hafró um að kenna

Fram kemur í tilkynningunni að í nýlega settri reglugerð sé veigamesta breytingin sú að í stað þriggja skilgreindra veiðisvæða koma sjö veiðisvæði sem eru mun stærri hvert um sig en áður voru í gildi. „Nýju veiðisvæðin eru ákveðin samkvæmt ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar í samvinnu við ráðuneytið. Að auki má nefna að fyrirtæki geta óskað eftir tilraunaleyfi vilji þau reyna fyrir sér utan hinna skilgreindu veiðisvæða,“ segir í tilkynningunni.

Tilefni framangreindra breytinga eru meðal annars sagðar vera þróun á veiðum úr stofninum á síðastliðnum árum. Þannig sé það mat Hafró að veiðar á síðasta ári hafi verið langt umfram það sem stofninn þolir. Við þeirri alvarlegu stöðu hafi þurft að bregðast.