Veiða elgi í eistlandi - köben í dag

Þórir Garðarsson, stjórnarformaður rútufyrirtækisins Iceland Excursions/ Grayline ræðir við Sigmund Erni um umferðarþungan sem hlýst af stórum rútum um landið og ekki síst í þéttbýli, í borginni.

Dyrfjöll – Stórurð

Verkefnið Dyrfjöll – Stórurð, gönguparadís hlaut Umhverfisverðlaun Ferðamálstofu fyrir árið 2016. Árleg viðurkenning Ferðamálastofu. Stórurð er án efa eitt stórfenglegasta náttúrufyrirbrigði á Austurlandi. Ólöf Ýrr Atladóttir segir frá perlunnni.

BIRNA um Köben í dag

Svo er það hin eina sanna Birna Karen, fatahönnuður sem er komin er áEiðistorgið til okkar með POP UP búð. Birna Karen hefur búið í 24 ár í Kaupmannahöfn og segir okkur margt athyglisverð um borgina sem er ekki sú sama og margir þekkja frá árum áður. Við fjöllum um Köben árið 2016.

Skotveiðiferð til Eistlands

Skotveiðihópur fimm kvenna sem fóri til Eistlands í október að skjóta Elg. Þær skutu sitthvað fleira og veiddu vel. Linda hitti þrjár þeirra í vikunni en ein þerra rekur Iceland Outfitters, veiðiferðaskrifstofu, skipuleggur alls kyns veiðiferðir fyrir erlenda ferðamenn. Þessar konur eru í félagsskap sem nefnist T&T International. Hér má sjá brot úr viðtalinu:

Ferðalagið er í umsjón Lindu Blöndal og Sigmundar Ernis. Það er frumsýnt á fimmtudagskvöldum kl.21.30.