Vegurinn að skál fór í sundur

Hamfaraflóðið á Suðurlandi er í rénun. Vatnsborð Skaftár hefur lækkað um að minnsta kosti fimmtíu sentimetra frá því sem mest var er flóðið náði hámarki á sunnudag. Enn flæðir þó yfir þjóðveg eitt á um eins kílómeters kafla skammt vestan við Kirkjubæjarklaustur. Vegurinn að bænum Skál hefur þó orðið enn verr úti, en flóðið náði að rjúfa veginn á stórum köflum auk þess sem við brú á leiðinni að mastri Neyðarlínunnar á Skálarheiði hefur orðið verulegt rof í veginum eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Búist er við að Vegagerðin hefði viðgerð á veginum fyrir helgi.