Víðtæk lokun er enn í gangi um mest allt land, suðvestanlands er þó búið að opna allar aðalleiðir. Verið er að meta aðstæður gagnvart veðri og ástandi og unnið er að opnun þar sem hægt er.
Greiðfært er um Reykjanesbraut en einnig á Kjalarnesi og undir Hafnarfjalli þar sem er óveður.
Hálkublettir eru á Sandskeiði og Hellisheiði en greiðfært um Þrengslin.
Á Snæfellsnesi er krapi á Vatnaleið láglendi en annars hálkublettir eða hálka. Óveður er víða í Borgarfirði.
Rafmagnslína liggur á þjóðvegi 1 í Skagafirði milli bæjanna Miðsitju og Sólheima, unnið er að viðgerð og verður vegurinn lokaður á meðan. Þar sem vegir eru opnir á Norðurlandi er mjög víða flughálka.
Á Austurlandi er flughálka á þeim leiðum sem eru opnar nema á Fagradal en þar er hálka. Unnið er að opnun á Oddskarði.