„Við sjáum það líka að umferðin hefur stóraukist því við höfum jú verið að gera út á vegina. Ferðaþjónustan hefur blómstrað og flestallir ferðamenn leggja land undir fót og fara á vegina okkar. Það þýðir stóraukin umferð, aukið slit, aukið álag og því miður fleiri slys.“ Hlutfallslega renni lítið skattfé, sem innheimt er af bílum og umferð, til viðhalds og þjónustu við vegakerfið.
Runólfur kallar eftir þjóðarátaki um þennan málaflokk. „Í rauninni er þetta bara spurning um að forgangsraða í þágu öryggis og setja aukna fjármuni í verkefnið. Vissulega krefjist margir aukinna fjármuna. „En það er sem betur fer þannig að hver króna sem sett er í vegina skilar sér jafnvel tvöfalt,“ segir Runólfur. Þetta sýni erlendar rannsóknir.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/vegir-landsins-grotna-nidur