Þorsteinn Víglundsson, þingmaður Viðreisnar, segir það versta við nýundirritaða kjarasamninga að samningsaðilar vega að sjálfstæði Seðlabanka Íslands. Hann segir það vera vegna þess að vaxtalækkanir bankans séu gerðar að hálfgerðu skilyrði, enda er kveðið á um það í samningunum að hægt sé að segja þeim upp gangi vaxtalækkanir ekki eftir. RÚV.is greinir frá.
„Þarna finnst mér samningsaðilar vera að vega að sjálfstæði bankans og mér þykir það ekki góður bragur af hálfu samningsaðila og stjórnvalda að það sé verið að gera kjarasamning sem setur spjótin á Seðlabankann,“ segir Þorsteinn í samtali við RÚV. Hann telur þessa aðgerð auk þess ekki skynsamlega þar sem það eigi enn eftir að koma í ljós hvort samningarnir leiði af sér verðlagsstöðugleika eður ei.
Að öðru leyti þykir Þorsteini aðgerðir ríkisstjórnarinnar í hinum svokölluðu „lífskjarasamningum“ jákvæðar. Áformin hafi þó þegar legið fyrir og verið pakkað inn í búning kjarasamninga. „Það lá fyrir frá upphafi að ríkisstjórnin ætlaði sér í skattalækkanir af þessu umfangi en það er auðvitað jákvætt að sjá að hún hefur hlustað á kröfur verkalýðshreyfingarinnar um að þær lækkanir skiluðu sér til lægstu tekjuhópanna.“