Veggjöld til þinglegrar meðferðar í næstu viku

„Samgönguáætlunin er nánast eina málið sem nefndin fjallaði um á haustþingi. Á nefndardögum í janúar var málið enn og aftur til umræðu. Við erum á því að við séum komin til botns í þeirri umræðu og að það sé tímabært að senda málið til þinglegrar meðferðar. Ég reikna með því að það verði í næstu viku,“ segir Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins og varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar.

Í nýrri samgönguáætlun til næstu 15 ára er að finna tillögu um upptöku veggjalda sem yrðu innheimt á stofnbrautum frá Reykjavík og í öllum jarðgöngum landsins í þeim tilgangi að auka fjármagn til samgöngumála og flýta þar með fyrir brýnum framkvæmdum og bæta við nýjum ef þarf.

Nefndin hefur undanfarið fjallað um málið og fengið metfjölda umsagna, sem flestar snúa að fyrirhugaðri upptöku veggjalda og eru að meirihluta neikvæðar. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata og áheyrnarfulltrúi í nefndinni, segir að í samkomulagi sem var gert fyrir jól hafi verið kveðið á um að samgönguáætlunin skyldi kláruð úr nefnd eigi síðar en 1. febrúar og þá gæti hún verið tekin til seinni umræðu.

Jón og Björn Leví voru gestir Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 í gærkvöld, þar sem þeir ræddu um þessa fyrirhuguðu upptöku veggjalda. Viðtalið í heild sinni er að finna hér að neðan: