Veganismi vinsæll á íslandi

Tæplega 5.500 Íslendingar eru skráðir á Facebook síðu sem nefnist Vegan-Ísland. Það er lokaður hópur en enn fremur má sjá að í umræðuhópnum Vegan samtökin – umræðuhópur eru 723 skráðir. Rúmlega 1450 eru svo í enn einum hópnum sem snýst að mestu up Vegan uppskriftir. 

Vegan Ísland er umræðuhópur um svokallaðan “veganisma” á Íslandi. Á síðunni eru frekari upplýsingar á ensku sem útleggja má svona á Íslensku: “Veganismi er lífstíll þar sem leitast er við að komast hjá, eins og mögulegt er allri misnotkun á dýrum, hvort sem er til matar, fatagerðar eða annars”.

Dýravernd

Þeir sem aðhyllast Vegan eins og það er kallaði í daglegu tali, láta ekki neinar dýraafurðir inn fyrir sínar varir. Vegan fólkið gengur ekki í flíkum sem sem rekja megi mögulega til þess að dýr þjáist og nota engar aðrar vörur sem líklegt er að hafi skaðað dýr, stór sem smá.

Pólitískur lífstíll

Facebook tölur segja auðvitað ekki alla söguna um hve útbreiddur þessi lífstíll er. Þátturinn Lífið á Hringbraut mun á þriðjudagskvöldinu 17.maí skoða nánar uppsveiflu í veganlífstíl hér á lalndi sem snýst oft ekki síður um stjórnmálaleg viðhorf en matarræði. Lífið mun kanna hvort það flokkist t.d.  undir dýraníð að borða egg og ost eða hvort ástæður þess að hafna slíkum dýraafurðum séu af flóknari ástæðum.

Lífið verður á dagskrá kl.20.00 á þriðjudagskvöld.