Hörður Einarsson hæstaréttarlögmaður hefur sent ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, erindi á grunni þess að ríkisaðstoð vegna vegalagningar stóriðju PCC á Bakka við Húsavík kunni að vera brot á reglum. Hörður sendir ábendinguna sem fulltrúi almennings og án nokkurra hagsmunatenginga. Hann vann mál sem hann flutti sjálfur gegn íslenska ríkinu fyrir EFTA dómstólnum upp úr aldamótum og varðaði virðisaukaskatt af erlendum bókum.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar snýst kæran um að vegaframkvæmdir frá höfninni að lóð PCC voru ekki tilkynntar sérstaklega til ESA. Áætlaður kostnaður er nú 3,1 milljarður vegna vegar og vegganga og hefur stórhækkað frá fyrra mati eins og Hringbraut hefur sagt frá.
Vegurinn og göngin verða ekki ætluð almennri umferð. Fyrir vikið verður framkvæmdin ekki hluti af þjóðvegakerfi landsins skv. vegalögum. Þegar einstök fyrirtæki, eitt eða fleiri, njóta góðs af innviðum sem ekki verða öllum opnir eru fordæmi fyrir ríkisaðstoð, en heimildir Hringbrautar herma að hugsanlega hafi nú þegar verið veitt hámarksbyggðaaðstoð til PCC. Leikur því vafi á að frekari ríkisaðstoð sé leyfileg skv. EES samningnum. Má ætla að ESA hefji rannsókn á málinu.
Íslenska ríkið og Norðurþing hafa veitt PCC um fjóra milljarða króna ríkisstyrk í formi fjárframlags til lóðaframkvæmda og ýmisskonar afslátta af sköttum og gjöldum. ESA samþykkti ríkisstyrkina sem byggðaaðstoð í fyrra. Að auki hefur hafnarsjóði Norðurþings verið veitt ríkisaðstoð vegna nauðsynlegra hafnarframkvæmda, en höfnin verður opin öllum hugsanlegum notendum. ESA samþykkti þá ríkisaðstoð einnig í fyrra. Vegurinn og veggöngin voru ósk PCC en starfsemi PCC og flutningar voru af hálfu eigenda PCC og hagsmunaaðila talin fara illa með almennri umferð vegfarenda.
Klippt var á borða á Bakka við Húsavík í gær til að fagna upphafi framkvæmda kísilvers PCC, sama dag og erindið barst ESA.