Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir hlutfallið sem fari í vegakerfið nú vera mjög lágt sögulega séð, bæði sem hlutfall af umferð og landsframleiðslu. Eins ogViðskiptablaðið hefur sagt frá opnar Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra á frekari gjaldtöku, t.d. með tímagjaldi, og einkaframkvæmdum í nýrri samgönguáætlun.
Sigurður Ingi segir að með nýrri samgönguáætlun til næstu 15 ára sé helstu markmiðum náð um aðskilnað aksturstefnu frá Keflavík og austur fyrir Hellu, og upp fyrir Borgarnes, aukið umferðaröryggi og helstu farartálmar yfirstignir. Auk þess sé svarað gagnrýni Samtaka iðnaðarins og fleiri um uppsafnaða viðhaldsþörf í vegakerfinu sem nemi allt að 65 milljörðum.
Nánar á
http://www.vb.is/frettir/vegakerfid-faer-sogulega-litid/150126/