Vegagerðin varar við lögbrotum

Akstursbann er nú á fjölmörgum hálendisvegum og malarslóðum sem eru mjög viðkvæmir meðan frost er að fara úr jörð, að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar í dag.

Þar segir að því miður beri talsvert á því að ökumenn virði ekki merkingar um þessar lokanir sem settar séu á til að hlífa bæði vegunum sjálfum og náttúrunni í kringum þá fyrir átroðningi og skemmdum sem auðveldlega verða á þessum árstíma. Því sé rétt að árétta að það sé beinlínis lögbrot að fara inn á veg framhjá merkinu allur akstur bannaður. .