Í frumvarpinu er gerð tillaga um 640 milljóna króna tímabundið framlag vegna viðbótarkostnaðar við gangagerð og vegtengingu við iðnaðarsvæðið á Bakka og að tímabundið framlag upp á 850 milljónir króna, sem veitt var á síðustu fjárlögum, verði framlengt um eitt ár.
Í fjárlagafrumvarpinu kemur fram að þegar Alþingi hafi veitt iðnaðarráðherra heimild til að semja við Vegagerðina um framkvæmdina var gert ráð fyrir að hún myndi kosta 1,8 milljarð króna. Nú sé áætlaður kostnaður 3,1 milljarður eða 1,3 milljarði hærri. Skýringin er sögð sú að í kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar sem lögin byggðust á voru mannvirki óhönnuð og kostnaður við hefðbundinn veggöng staðfærður yfir á þessi göng.
Í frumvarpinu kemur fram að gera þurfi ráð fyrir 670 milljóna króna viðbótarkostnaðir á árinu 2017 en samtals geri þetta um 3,1 milljarð króna.