Vefjagigt er ekki ruslakistugreining!

Einn af hverjum fimm fær gift um ævina og margir þeirra líða vítiskvalir jafnt að nóttu sem degi. Sammerkt er um marga þeirra að eiga erfitt með að finna það jafnvægi í hreyfingu, mat og verkjastillingu sem til þarf að slá á meinið.

Þetta kemur fram í sjónvarpsþættinum Heilsutímanum á Hringbraut í kvöld, en þátturinn hefst klukkan 20:00 og er endursýndur strax klukkan 22:00. Gigt í öllum sínum myndum verður sumsé til umfjöllunar og fræðast áhorfendur þar um slitgigtarskólann og jóga og fá svo að heyra í færstu sérfræðingum landsins í vefjagigt, en það eru þau Arnór Víkingsson gigtarlæknir og Sigrún Baldursdóttir sjúkraþjálfari. Þau segja að taka beri vefjagigt alvarlega; þaR sé engin ruslakistugreining á ferðinni. 

Heilsutíminn í umsjá Gígju Þórðardóttur, sjúkraþjálfara er á dagskrá öll mánudagskvöld á Hringbraut klukkan 20:00.

Þátturinn er unninn í samvinnu við Fréttatímann.