Veðurútlit: hlýrra og blautara

Nú er útlit fyrir ívið hlýrri tíð en verið hefur - en samt er ekki hægt að tala um eindregna hlýindaspá. Spáin gerir ráð fyrir eindreginni suðaustanátt í háloftum yfir landinu.

Þetta kemur á bloggsíðu Trausta Jónssonar veðurfræðings sem gáir mörgum sinnum á dag til veðurs. Hann segir um suðaustanáttina: \"Sú átt er að jafnaði hlý, en að þessu sinni er allt í eindreginni lægðasveigju. - Háloftalægðin er í grunninn af norðlægum uppruna - suðaustanloftið áður komið úr vestri og norðvestri sunnan Grænlands. - En ekki er þó langt í mun hlýrra loft - sem Skandinavíubúar hafa baðað sig í undanfarna daga - og gera víst áfram - sé að marka þessa spá.\"

Hann telur líkur vera á hlýindaskotum úr austri: \"Þeirra nyti þá helst suðvestanlands - og kannski inn til landsins á Norðurlandi líka,\" skrifar hann í spurnartóni.

\"En satt best að segja,\" skrifar Trausti áfram \"er þetta mjög bleytuleg spá - sérstaklega um landið austanvert. Sýndarúrkoma líkansins reiknast á þessum tíu dögum fimmfalt meðaltal á Austur- og Suðausturlandi - og meira að segja á hún að vera vel ofan meðallags á landinu vestanverðu líka - en spár um úrkomumagn eru enn lausari í rásinni heldur en spár um vinda og hita.\"