Veðurstofan varar við úrhelli

Veðurstofa Íslands biður vegfarendur á Suð-austurlandi um að fara gætilega því búist er við talsverðri eða mikilli úrkomu þar auk snarpra vindhviða. Þá er einnig er búist við mikilli rigningu á norðanverðum Ströndum.
 

Næstu tvo sólarhringa má gera ráð fyrir talsverðri eða mikilli rigningu allt frá Mýrdalsjökli austur á Austfirði, þá sérstaklega í kringum fjöll og jökla. Við það eykst hætta á skriðuföllum og vexti í ám. Ferðafólk er sérstaklega beðið um að hafa allan varan á.

Búist er svo við suðlægari átt á morgun og dregur þá heldur úr vætu um vestan- og norðanvert landið, en áfram verður þó vætusamt suðaustanlands. Hiti verður 7 til 16 stig, svalast á annesjum norðan- og austanlands.

Nokkuð hlýtt og þurrt veður verður á Menningarnótt í Reykjavík.