Veðurstofan varar við flughálku

Athygli er vakin á að samfara því að hlánar í dag og á morgun eftir frostakafla undanfarinna daga má búast við að hált verði víða og sums staðar flughált. Á þennan veg hljóða tilmæli Veðurstofu Íslands á öðrum degi jóla.

Búast má við skúrum og éljum um sunnan- og vestanvert landið í dag þegar hiti verður á bilinu 0 til 5 stig síðdegis. Þurrt verður á Norður- og Austurlandi og minnkandi frost. Síðar gengur í suðaustan 15 til 23 eftir hádegi á morgun. Úrkomulítið verður norðanlands, en rigning á láglendi í öðrum landshlutum, talsverð um landið suðaustanvert. Það lægir vestantil annað kvöld, en þá hlýnar heldur í veðri og verður hitinn 2 til 7 stig seinnipartinn á morgun.

Hiti verður nokkuð yfir frostmarki á mánudag en svo kólnar aftur á þriðjudag.