Veðurstofan varar við falsreikningi: „100 like og jólin verða hvít“

Veðurstofa Íslands varar við því að það sé búið að stofna aðgang á Twitter sem tísti undir fölsku flaggi í nafni Veðurstofunnar.

Í færslunni á Facebook segir Veðurstofan að þótt að þau taki fleiri veðuráhugamönnum fagnandi ætlist þau til að það sé ekki gert í þeirra nafni.

Umræddur falsaðgangur virðist lýsa yfir vonbrigðum að geta ekki lengur birt færslur undir fölsku flaggi þar sem aðgangurinn tísti í gær að allt væri gott sem tæki enda.