Veðurstofan spáir stormi í kvöld

Veðurstofan býst við stormi suðvestanlands og á hálendi landsins undir kvöld.

\"Vaxandi vindur þegar líður á daginn og þykknar upp, fyrst suðvestantil. Austan 15-23 m/s suðvestantil í kvöld og rigning eða slydda, en annars hægari og úrkomulítið fram á nótt. Austan 13-20 á morgun, snjókoma og síðar slydda eða rigning norðantil á landinu. Annars rigning, en talsverð rigning suðaustantil. Dregur úr vindi þegar líður á morgundaginn, fyrst sunnantil. Hlýnandi veður, hiti 4 til 10 stig á morgun, en svalara norðaustantil,\" segir í veðurspá Veðustofu.

Svo virðist því sem hvörf séu fram undan eftir hægviðri síðustu daga.

Á morgun er fyrsti apríl og um þrjár vikur í sumardaginn fyrsta. Frægt skáld hefur sagt að apríl sé harðastur mánaða. Við vonum að það gangi ekki eftir á ísa fagra landinu okkar þar sem íbúa þyrstir í vorkomu og blóm í haga.