Veðurstofan hefur gefið út stormviðvörun. Rifjar veðurfræðingur af því tilefni upp illviðri sem hafi orðið 23. nóvember fyrir 23 árum. Búist er við vindi, meiri en 20 metrum á sekúndu, á austanverðu landinu í kvöld og á morgun.
Í færslu veðurfræðings segir: „Gengur á með suðvestahvassviðri og slydduéljum eða skúrum í dag, jafn vel stormi syðst. Snýst síðan í hvassa norðvestanátt með kvöldinu og er spáð stormi á Austfjörðum á morgun. Næstu daga verður umhleypingasamt í meira lagi og fáum við að upplifa ósvikið vetrarverður, með tilheyrandi kuldatíð, hvassviðri og fönn, sem þó getur ekki talist óalgengt á þessum árstíma.“
Veðurfræðingur heldur svo áfram: „Rifja má upp að sama dag árið 1992 urðu miklir skaðar í óveðri. Þakplötur og jafn vel heilu þökin fuku af húsum í veðurofsanum, raflínur rofnuðu, bílar, bátar og annað lauslegt skemmdist einnig, þó enginn hafi orðið fyrir heilsutjóni né týnt lífi, sem betur fór.
Þá er búist við stormi á á Suðvesturmiðum, Faxaflóamiðum, Breiðafjarðarmiðum, Vestfjarðamiðum, Norðvesturmiðum, Norðausturmiðum, Austurmiðum, Austfjarðamiðum, Suðausturmiðum, Vesturdjúpi, Grænlandssundi, Norðurdjúpi, Austurdjúpi, Færeyjardjúpi, Suðausturdjúpi, Suðurdjúpi og Suðvesturdjúpi .
Búast má við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum í dag og á sunnanverðum Austfjörðum á morgun.