Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur birt pistil á vef sínum Hungurdiskum þar sem hann segir að veðurspáin fyrir næstu nótt og morgun sé á mörkum hins ótrúlega.
Fram kemur hjá Trausta að Evrópureiknimiðstöðin hafi bætt í lægðina miklu sem á að heimsækja Ísland og hafa einkum áhrif á Austurland næstu nótt og er því jafnvel spáð að miðjuþrýstingur fari niður fyrir 930 hPA.
„Þótt lægðir með miðjuþrýsting undir 940 hPa séu ekki mjög sjaldséðar á Atlantshafi gerist það ekki oft að þrýstingur mælist svo lágur hér á landi. - Reyndar þó í fyrravetur (7. janúar, 939,0 hPa á Gufuskálum) - en síðan þarf að fara aftur til 1999 til að finna jafnlágan sjávarmálsþrýsting á íslenskri veðurstöð,“ skrifar Trausti.
Hann segir veðurspár erlendra stofnana ekki alveg samstíga en full ástæða sé að huga að alvöru málsins.
Mogginn segir frá því að bandaríska dagblaðið Washington Post segi að búist sé við að lágþrýstingskerfið sem valdið hafi mannskæðum hvirfilbyljum í nágrenni borgarinnar Dallas í Bandaríkjunum á laugardaginn umbreytist í „risavaxinn“ storm yfir Íslandi á morgun.