Veðurofsinn: vörubíll og bústaður fuku

Aðstæður til ferðalaga á landinu eru varhugaverðar, svo ekki sé meira sagt, enda er sagt í viðvörun Veðurstfofunnar í morgun að hann slái um sig með suðvestan og vestan roki eða ofsaveðri norðan- og vestanlands fram eftir morgni með éljum. 

Töluvert tjón hefur þegar orðið sakir veðurofsans. Flutningabíll með 40 feta gám á tengivagni fauk út af þjóðvegi 1 við Hlíðabæ rétt norðan bæjarmarka Akureyrar á fimmta tímanum í nótt. Bíllinn valt á hliðina út í vegöxlina, en mjúkt var undir. Ökumaður slasaðist ekki. 

Veðurofsans gerði miög vart á Austurlandi, en þar náði hann hámarki um miðnættið. Sjúkrabíll á leið yfir Oddskarð fauk útaf veginum um klukkan 21:00 í gærkvöld og sat þar fastur að því er fram kemur í tilkynningu frá Landsbjörg. Þá hentist hálfkláraður sumarbústaður, sem var í smíðum á planinu utan við trésmiðju á Egilsstöðum út á miðja göti þegar hvellurinn var hvað mestur, en þess utan varð minniháttar foktjón á einu íbúðarhúsi í bænum og nokkrar rúður brotnuðu í Menntaskólanum. Tvö stór tré brotnuðu líka og féllu, án þess þó að valda nokkru tjóni.

Þá fór rafmagn af Ströndum á fjórða tímanum í nótt, en það mun nú vera komið aftur á.

Suðvestan ofsaveður verður fram undir klukkan níu til tíu á Vestfjörðum og vestantil á Norðurlandi, en það lægir síðan talsvert. Veðurfræðingur Vegagerðarinnar gerir ráð fyrir að áfram verði þó 15 til 20 metrar á sekúndu um landið vestanvert og við taka nokkuð dimm él suðvestan- og vestanlands.

Slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum og eru flestir fjallvegir enn ófærir en þó er orðið fært yfir Gemlufallsheiði en þar er snjóþekja og mjög hvasst og blint. Vegurinn yfir Háldán er lokaður vegna óveðurs og umferðaróhapps

Í Norðurlandi er hálka á flestum vegum og víðast hvar mjög hvasst. Ófært er á Öxnadalsheiði og á Mývatnsöræfum en þar er nú stórhríð. Flughálka er í Þistilfirði og við Bakkaflóa.

Þæfingsfærð er á Háreksstaðaleið en annars hálka er á flestum leiðum á Austurlandi en þó er flughálka í Oddskarði og í Hjaltastaðaþinghá. Enn er ófært á Vopnafjarðarheiði en þar er óveður. Hálka er á nokkrum köflum með suðausturströndinni.  

Það eru hálkublettir og éljagangur á Reykjanesbraut og mjög víða á Reykjanesi. Hálka er á Sandskeiði og Hellisheiði og hálka eða hálkublettir á vegum á Suðurlandi.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir en snjóþekja Bröttubrekku, Svínadal og á Snæfellsnesi.  Ófært er á Holtavörðuheiði og Fróðárheiði.