Trausti Jónsson veðurfræðingur hefur rýnt í nýjustu spá Evrópureiknimiðstöðvarinnar fyrir tímabilið júní, júlí og ágúst og telur að hér verði hiti undir meðallagi miðað við síðustu fimmtán ár, sem hafi að meðaltali verið mjög hlý hér á landi. Þetta kemur fram á mbl.is í dag en þar segir Trausti: „Hitinn er undir meðallagi í sjónum þarna langt fyrir suðvestan land og ef vindátt þaðan verður ríkjandi eru því líkur á að hitinn verði undir meðallagi.“ Hann bætir við að það skipti höfuðmáli hvaðan vindurinn blæs.
„Ef suðvestanátt er ríkjandi á sumrin þá er rigning á Suðvesturlandi og frekar kalt. Það hefur ekkert með sjávarhita að gera. Ef vindurinn verður vestlægur þá er bjart á Vesturlandi og sjávarhitinn suðvestur í hafi hefur ekkert með það að gera, því vindurinn blæs ekki þaðan,“ segir Trausti á mbl.is og ítrekar að ekki sé enn hægt að spá um það með góðu móti hvernig sumarveðrið verði.