Veður fer heldur hlýnandi á landinu

Allhvassar austan- og norðaustanáttir verða ríkjandi suðaustan til í dag, en að öðru leyti gerir spá Veðurstofunnar ráð fyrir hægum vindi og reiknar aukinheldur með að hitiinn í dag  stígi upp fyrir frostmark á Suðausturlandi og Austfjörðum í dag, þar má búast við stöku skúrum eða éljum. 
 
Annars staðar á landinu verður úrkoma lítil. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings. Reikna má með frosti niður í 10 stig inn til landsins í dag. 

Vakthafandi veðurfræðingur telur að það fari að hlýna þegar líður á vikuna. Þá er einnig búist við vætu syðra eftir langa þurrkatíð á þeim slóðum.

Í yfirliti Vegagerðarinnar um ástand vega segir að þeir séu yfirleitt greiðfærir á Suðurnesjum. Á Vesturlandi eru vegir að mestu greiðfærir sunnantil en meira um hálkubletti er norðar dregur. Snjóþekja er á Vatnaleið og þæfingsfærð á Útnesvegi. Ófært er á Fróðárheiði en unnið að hreinsun. 

Það er víða hálka, hálkublettir eða snjóþekja á  Vestfjörðum en þæfingsfærð á Þröskuldum. Vegir eru nánast auðir í Húnavatnssýslu en hálka er á Þverárfjalli og hálkublettir í Skagafirði. Þæfingsfærð er á Öxnadalsheiði en unnið er að hreinsun. Á Norðausturlandi er hálka eða snjóþekja á vegum

Hálka og snjóþekja er víða á Austurlandi og einhver éljagangur. Það eru hálkublettir á köflum með suðausturströndinni.