Veðrið: stormasöm vika með éljagangi

Talsverð fyrirferð verður í vetrarveðrinu í annari viku marsmánaðar - og er lítið sem ekkert lát á ofankomu og kulda fram að helgi að því er best verður lesið úr kortum Veðurstofu Íslands.

Á Hellisheiði og í Þrengslum  versnar veður með morgninum. Frá hádegi og fram undir kvöldmat er reiknað með 15 til18 m/s, hríðarveðri og skafrenningi. Einnig á Mosfellsheiði og á Lyngdalsheiði.  Skil koma úr suðvestri og með þeim hlýnar lítillega.  Á láglendi hlánar og þar verður slydda eða rigning en ofan um 150 til 200 metra verður hríðarveður suðvestan- og vestanlands. Þetta á m.a. við um Snæfellsnes og sunnanverða Vestfirði en einnig Holtavörðuheiði og Bröttubrekku um tíma síðdegis.

Það snjóar þó einna helst um austanvert landið í dag, en stöku él verða einnig vestantil. Búast má við bjartviðri annars staðar. Það gengur svo í suðaustan 13 til 20 m/s um hádegi með slyddu og síðar rigningu, talsverðri suðaustantil. Hægari vindur verður norðaustantil fram eftir degi og úrkomulítið. Éljagangur verður vestantil í kvöld en talsverð rigning suðaustanlands. 

Hitinn næstu daga verður um og yfir frostmarki, einkum þó frost inn til landsins, en það er ókyrrðin í veðrinu sem setur mestan svip sinn á kortin þessa dagana. Lygnur síðustu daga eru að baki og hvassviðrið kemur í rokum, svo sem næsta fimmtudag þegar gengur í austan og suðaustan hvassviðri eða storm með talsverðri rigningu, einkum sunnan- og suðaustanlands. 

Um næstu helgi verður breytileg átt og víða léttskýjað en norðan strekkingur og snjókoma austast. Kalt í veðri.