Góðar líkur eru á að Hatari komist áfram í úrslit Eurovision söngvakeppninnar í Tel Aviv í Ísrael, ef eitthvað er að marka alþjóðlega veðbanka. Eurovision World hefur tekið saman stuðla frá fjölda veðbanka og samkvæmt reikniformúlu vefsíðunnar eru 87 prósent líkur á að Hatari komist áfram. Mbl.is greinir frá.
Hatari mun stíga á svið á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision þann 14. maí næstkomandi. Fari svo að veðbankarnir hafi rétt fyrir sér mun hljómsveitin taka þátt í lokakeppninni þann 18. maí. Yrði það í fyrsta skipti síðan árið 2014 sem íslenskt atriði kæmist í lokakeppnina, eða síðan Pollapönk náði því og lenti í 15. sæti.
Mbl.is greinir frá því að tíu af 17 lögum sem taka þátt í fyrri undanúrslitunum munu fara áfram. Samkvæmt Eurovision World mun Hatari hafna í þriðja sæti það kvöld og því fara örugglega í úrslit söngvakeppninnar.
Enn fremur er Hatara spáð 6. sæti í lokakeppninni, auk þess sem fimm prósent líkur eru taldar á að hljómsveitin sigri Eurovision í ár.